DISASTER SONGS (HICD001)

Ástarsorg, eftirsjá, fórnir, draumórar, vonbrigði, ótti, einmanaleiki, þrá, sambandsslit og sorg. Fegurð hins særða.

Disaster Songs er geisladiskur sem inniheldur 11 lög og texta eftir Hall Ingólfsson. Lögin eiga það öll sameiginlegt að fjalla um mannlegar hörmungar, jafnvel hamfarir eða ömurlegar aðstæður, enda dregur diskurinn nafn sitt af þessum viðfangsefnum. Hljóðheimur tónlistarinnar er að sama skapi skaddaður, brothættur, sár og dramatískur. Stundum einfaldur og smár og stundum risastór og óræður, líkt og sá tilfinningaskali sem spinnur saman fagra tónlist og hjartans sár.

Disaster Songs er tekin upp á löngu tímabili. "Lögin komu flest til mín á einum mánuði", segir Hallur Ingólfsson, en hann er höfundur allra laganna. "Ég var ekkert sérstaklega að pæla í að gera plötu eða neitt, þetta bara kom einhvernveginn, og mér finnst að ef eitthvað gerist svona eðlilega og átakalaust, þá hlýtur það að vera eitthvað sem maður verður að koma frá sér". Það var ekki fyrr en um mitt ár 2006 sem að vinna hófst við að útsetja og vinna lögin. "´Ég var alltaf að semja tónlist fyrir eitthvað annað", segir Hallur sem hefur verið mjög afkastamikill í tónsmíðum fyrir leikhús, dans og kvikmyndir undanfarin ár. "Ég gef mig mjög að þeim verkefnum sem ég tek að mér og vill alls ekki kasta til hendinni með neitt sem ég er að gera. Þessi tónlist er þannig að maður verður að hafa daginn fyrir sér og komast í réttu stemninguna. Mér fannst líka allt í lagi að þetta tæki tíma. Fannst þetta alltaf jafn áhugavert þegar ég snéri mér að þessu". Sum lögin rötuðu þó í leiksýningar sem Hallur var að vinna að, en þó gjarnan í öðrum búningi. "Já, ég man til dæmis eftir einu tilfelli þar sem ég var beðinn um að semja alveg himneska tónlist, þá tók ég eitt af þessum lögum og útsetti fyrir strengi og kór, en það er önnur útsetning á Disaster Songs". Hugmyndirnar að textunum komu oftast um leið og lögin urðu til. "Mér fannst mikil áskorun að fjalla um þessa hluti sem fæstir tala um. Þessa skelli sem móta okkur og marka spor í okkar persónuleika. Texta sem fjalla um eitthvað. Segja frá þessum erfiðu hlutum án þess að vorkenna sjálfum sér eða biðja um hluttekningu eða meðaumkun. Ekkert væl, bara leggja spilin á borðið af einlægni."

Hallur sér um allan hljóðfæraleik á Disaster Songs, tekur upp og hljóðblandar. Með honum á disknum syngur Halldóra Malin Pétursdóttir. Hvernig kom það samstarf til? "Ég kynntist Halldóru fyrir löngu síðan og hafði heyrt hana syngja. Ég vildi endilega fá hana til að syngja eitt lag, og þegar ég heyrði útkomuna fannst mér eiginlega augljóst að hún kláraði dæmið með mér. Sem betur fer var hún til í það".

Disaster Songs verður fylgt eftir með tónleikahaldi, og er valinn maður í hverju rúmi í hljómsveitinni. Axel "Flex" Árnason sem hljómjafnaði (Masteraði) Disaster Songs sér um slagverkið. Hafþór "Tempó" Karlsson leikur á kontrabassa og Ása Dýradóttir, bassaleikari Mammút leikur á Wurlitzer rafmagnspíanó, auk þeirra Halldóru sem syngur og Halls sem syngur og spilar á gítar. "Þetta er allt toppfólk sem þekkir vel til þess sem er að gerast í tónlist í dag", en bæði Hafþór og Axel eru upptökustjórar sem hafa unnið með helstu hljómsveitum landsins undanfarin ár. "Þetta eru þungavigtarmenn í þessum bransa og mér er mikill heiður af því að þeir séu til í að taka þátt í þessu. Þeir væru varla að því ef þeim findist ekki eitthvað varið í þetta".

Disaster Songs kom út 11. september 2009.

ÚR DÓMUM:

Disaster Songs er hörkugóð plata. Lögin eru snotur og minna á ýmislegt án þess að herma eftir. Maður heyrir í Mazzy Star, My Bloody Valentyne, Velvet Underground með koxaða Nico í frontinum, Julee Cruise í loftrými með David Lynch og yngra dót eins og Air og Portishead hljóma á kantinum. Dæmi sem er alveg að svínvirka. Niðurstaðan er sú að Disaster Songs er einhver flottasta plata ársins. Verulega flott. Þessi fer pottþétt á listann yfir 10 bestu plötur ársins.
- Dr. Gunni - Eyjan.is og Fréttablaðið (4 stjörnur af 5).

Disaster Songs einkennist af dimmleitum, ballöðukenndum og tregafullum tónsmíðum og er að því leytinu til temaverk. Í sorginni er oft falin fegurð og það undirstingur Hallur í lögunum. Mörg þeirra nokkurs konar harmrænar vögguvísur. Stundum poppar Portishead upp í hausinn þegar hlýtt er á; lögin eru stálköld en aðlaðandi um leið. Söngraddirnar liggja þá þannig í hljóðrásunum að það er líkt og þær komi langt að og þetta setur „skemmtilega“ – og vel hæfandi – áferð á lögin. Líkt og draugar séu að syngja um örlög sín. Upplifunin af plötunni er þó – eins einkennilega og það kann að hljóma – ekki þunglyndisleg. Raddir Halls og Halldóru eru þannig kaldar og fjarlægar; en það er meira eins og þær séu að lýsa hlutunum eins og þeir eru af bröttu hugrekki, fremur en að æmt sé og skræmt yfir hræðilegum örlögum. Besta dæmið um þetta er lagið „Down Down“, sungið af Halldóru, þar sem söguhetjan fer stóískt yfir það hvað hefur hent.
- Arnar Eggert Thoroddsen - Morgunblaðið (3 og 1/2 stjarna af 5).

MEIRA EFNI:

My future lost in your past á YouTube

Disaster Songs Album preview á YouTube

Disaster Songs á gogoyoko.com